Áður en þú byrjar
Skilmálar
Hér eru nokkrar reglur sem hver og einn þarf að lesa yfir áður en hann/hún ákveður að koma í tíma. Það má eiginlega líta á þetta sem samning, og þetta eru skilmálarnir.
- Greiðslur fara fram í upphafi annar.
- Nemendur þurfa að undirbúa sig fyrir hvern tíma. Að undirbúa sig þýðir að æfa sig heima ca 5 daga vikunnar í 15–30 mín á dag.
- Það er ekki í boði að koma illa æfður og alls ekki í boði að koma óæfður.
- Þeir nemendur sem koma óæfðir fá hámark 10 mín af tímanum, því ég gef mig ekki út fyrir það að hlusta á nemendur vinna heimavinnuna í tímanum. Píanótíminn fer í það að fara yfir heimaæfingarnar, sjá hvað má laga og hvað er orðið gott, svo set ég meira fyrir. Þannig virkar þetta.
- Ef nemandi kemur óæfður í tíma 5 sinnum yfir önn þá fær hann ekki pláss næstu önn.
- Fyrir þá sem hafa áhuga á að læra á píanóið og þar af leiðandi sinna því, þá eruð þið velkomin í tíma og finnst mér fátt skemmtilegra en að kenna fólki sem hefur metnað fyrir því sem það tekur sér fyrir hendur ☺
- Ég bæti ekki upp forföll nemenda. Ef nemandi kemur of seint er það hans mál.
- Nemendur þurfa að hafa hljóðfæri heima fyrir.